Ég las áhugaverða grein í Morgunblaðinu á dögunum undir fyrirsögninni „Bessent storkar markaðslögmálunum“. Þar var fjallað um Scott Bessent, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, og þá áskorun sem felst í miklum ríkisskuldum og háum langtímavöxtum.
Bandaríkin skulda vissulega mikið. Opinberar skuldir nema nú um 126% af landsframleiðslu og ríkissjóður er rekinn með verulegum halla. Bandaríska fjármálaráðuneytið getur haft áhrif á framboð og samsetningu ríkisskuldabréfa, en til lengri tíma ræður markaðurinn miklu um þá ávöxtun sem fjárfestar krefjast fyrir að lána ríkinu.
Það er hins vegar mikilvægt að setja þessa stöðu í samhengi við önnur stór hagkerfi.
Japan er með opinberar skuldir yfir 200% af landsframleiðslu, Ítalía um 138%, Frakkland um 118% og Bretland um 100%. Evrusvæðið í heild er í kringum 88% en Þýskaland nálægt 65%. Kína er erfiðara að bera beint saman við þessi ríki þar sem veruleg skuldsetning liggur einnig hjá ríkistengdum aðilum og fyrirtækjum. Skuldahlutfall eitt og sér segir því aðeins hluta sögunnar; hagvöxtur, framleiðni, aðgangur að fjármagni og traust fjárfesta skipta einnig máli.
Bandaríkin hafa sterka stöðu
Bandaríska hagkerfið vex nú hraðar en flest önnur þróuð hagkerfi. Gert er ráð fyrir um 2,3% raunhagvexti í Bandaríkjunum, samanborið við um 0,9% á evrusvæðinu, 1% í Bretlandi og 0,6% í Japan.
Bandaríkin hafa jafnframt stærsta og dýpsta fjármagnsmarkað heims, dollarann sem helsta forðagjaldmiðil heimsins og öflugan einkageira. Þarna felst ákveðin þversögn: ríkisfjármálin eru veikasti hluti myndarinnar, en undirliggjandi hagkerfi og einkageirinn standa áfram sterkt í alþjóðlegum samanburði.
Meiri munur á fyrirtækjum
Fyrir hlutabréfafjárfesta er þetta áhugavert umhverfi. Þegar vextir eru hærri og fjármagn kostar meira skiptir sterkur efnahagsreikningur meira máli, skuldsetning verður sýnilegri áhætta og verðmat fær aukið vægi. Því meiri sem munurinn er á gæðum og verðmati fyrirtækja, því meira vægi fær vandað hlutabréfaval.
Hátt verðmat hlutabréfamarkaðarins í heild þýðir heldur ekki að öll fyrirtæki innan hans séu dýr. Félög innan sömu vísitölu geta verið mjög ólík hvað varðar verðmat, skuldsetningu, arðsemi og sjóðstreymi. Gott fyrirtæki er ekki sjálfkrafa góð fjárfesting ef verðið er of hátt og tímabundin óvissa getur skapað tækifæri þegar undirliggjandi rekstur er sterkari en verð hlutabréfsins gefur til kynna.
Horft fram á veginn
Það er full ástæða til að fylgjast náið með þróun bandarískra ríkisfjármála. Mikill fjárlagahalli, vaxandi skuldir og hærri vaxtakostnaður eru raunverulegar áskoranir. Fyrir langtímafjárfesta getur umhverfi þar sem verð á fjármagni, skuldsetning og verðmat skipta meira máli þó jafnframt skapað tækifæri til að greina betur á milli verðs og virðis.
Greinin er almenn umfjöllun um efnahagsmál og fjármálamarkaði og felur hvorki í sér tilboð um kaup eða sölu fjármálagerninga né persónulega fjárfestingarráðgjöf.
