Tvær töflur sem birtust í Viðskiptablaðinu miðvikudaginn 2. september sl. segja áhugaverða sögu um stöðu innlendra fjárfestingatækifæra. Á meðan S&P 500 hefur hækkað um 12,65% frá áramótum, Nasdaq Composite um 13,60%, STOXX Europe 600 um 10,52% og spænska IBEX 35 um 15,80% eru allir íslensku hlutabréfasjóðirnir sem birtast í samanburði blaðsins í neikvæðri ávöxtun. Lækkunin nemur frá 4,39% og upp í 17,29%. Þetta er athyglisverður munur sem vekur upp áleitna spurningu: Hvar eigum við Íslendingar að leita fjárfestingatækifæra?
Íslendingar hafa lengi verið duglegir að spara. Við eigum húsnæði, leggjum fyrir í lífeyrissjóði og höfum í vaxandi mæli áhuga á hlutabréfum og fjárfestingum. En þegar kemur að því að fjárfesta sjálf virðist heimurinn stundum enda við íslensku landsteinana. Það er skiljanlegt þar sem við þekkjum best fyrirtækin í kringum okkur. Við verslum við þau, lesum um þau í fjölmiðlum og sjáum stjórnendur þeirra í viðtölum. Kunnugleiki er þó ekki trygging fyrir góðri fjárfestingu.
Í OMXI15 vísitölunni eru 15 félög. Allur skráði íslenski hlutabréfamarkaðurinn telur aðeins 27 fyrirtæki. S&P 500 vísitalan samanstendur af 500 af stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna. Þar eru fyrirtæki úr fjölmörgum atvinnugreinum, með starfsemi um allan heim og tekjur sem koma frá mörgum hagkerfum og gjaldmiðlum. Þetta er einfaldlega allt annar fjárfestingaheimur.
Fjárfestingaval skiptir líka máli
Það væri þó of einfalt að skýra slaka ávöxtun íslenskra hlutabréfasjóða eingöngu með smæð íslenska markaðarins. Virk stýring þýðir einmitt að sjóðstjóri tekur ákvarðanir. Hann ákveður hvaða fyrirtæki eru keypt, hversu stór staða er tekin og hvenær hún er seld. Þess vegna verður einnig að meta árangur virks sjóðs út frá gæðum þessara ákvarðana.
IS Hlutabréfasjóðurinn er gott dæmi og einn af þeim sjóðum sem nefndur er í umfjölluninni. Sjóðurinn lýsir stefnu sinni sjálfur sem virkri stýringu sem byggir á greiningum sjóðstjóra á efnahagsmálum, fjármálamörkuðum og rekstri einstakra fyrirtækja. Síðustu fimm ár hefur sjóðurinn skilað neikvæðri ávöxtun upp á 19,1%, eða um 4,2% að meðaltali á ári. Síðustu þrjú ár hefur heildarlækkun sjóðsins numið 15,9%.
Til samanburðar hefur S&P 500 hækkað um tæp 80% samtals síðustu fimm ár. Munurinn á kostnaði er líka mikill. IS Hlutabréfasjóðurinn tekur 1,70% í árleg umsjónarlaun, en S&P 500 er hægt að nálgast með kauphallarsjóðum þar sem árlegur heildarkostnaður getur verið aðeins örfáir hundraðshlutar úr prósentu. Þarna er því ekki aðeins mikill munur á ávöxtun heldur einnig á því hvað fjárfestir greiðir fyrir fjárfestinguna. Rétt er þó að hafa í huga að fimm ára S&P 500 talan er reiknuð í Bandaríkjadölum en ávöxtun IS Hlutabréfasjóðsins í íslenskum krónum. Samanburðurinn er því ekki fullkomlega gjaldmiðlajafnaður, en stærðargráðan er engu að síður athyglisverð.
Smæð markaðarins takmarkar vissulega valkostina. En innan þess markaðar þarf samt að velja á milli fyrirtækja, atvinnugreina og verðmata. Sum fyrirtæki standa sig betur en önnur og sum hlutabréf eru keypt á hagstæðara verði en önnur. Smæð markaðarins gerir gott hlutabréfaval því ekki minna mikilvægt. Hún gerir það enn mikilvægara. Og þegar fjárfestir greiðir sérstaklega fyrir virka stýringu er eðlilegt að spyrja hvort þær virku ákvarðanir hafi skapað verðmæti umfram það sem hægt hefði verið að fá með einfaldari fjárfestingu.
Stærri fjárfestingaheimur, en valið skiptir máli
Segja má að fjárfestar standi í raun frammi fyrir tveimur áleitnum spurningum. Í fyrsta lagi: Úr hve góðum fjárfestingaheimi hefur sjóðstjórinn að velja? Í öðru lagi: Hve vel tekst sjóðsstjóranum að velja innan þess fjárfestingaheims?
Góður sjóðstjóri getur átt erfitt uppdráttar á veikum markaði, að sama skapi tryggir stór og öflugur markaður heldur ekki árangur sjóðsstjórans. En þegar fara saman stór fjárfestingaheimur og agað, vandað fyrirtækjaval, aukast möguleikarnir á að finna góð fyrirtæki á hagstæðu verðmati. Þar liggur einn stærsti kosturinn við að horfa út fyrir Ísland.
Það gleymist stundum að fjárhagsleg staða flestra Íslendinga er þegar mjög tengd Íslandi. Við fáum launin okkar greidd hér. Heimilið okkar er hér. Lífeyrisréttindin eru að stórum hluta tengd íslensku hagkerfi og tekjuöflun okkar ræðst af því hvernig Íslandi vegnar. Það er því ekki sjálfgefið að sparnaður okkar utan lífeyriskerfisins þurfi einnig að vera bundinn við sama litla hagkerfið. Rík ástæða er til að hvetja landsmenn til að skoða stærri fjárfestingaheima og nýta þá möguleika sem þar fyrirfinnast. Alþjóðleg fjárfesting snýst ekki um að snúa baki við Íslandi. Hún snýst um að dreifa áhættu og opna fjárfestinum stærri heim sem svo eykur velmögun og tækifæri á Íslandi þegar sú fjárfesting skilar sér heim.

Iceland, 1591. Map by Abraham Ortelius. Public domain