Þegar talað er um fjármálalæsi hugsum við gjarnan um heimilisbókhaldið:
að fólk skilji vexti, verðbólgu, lán, sparnað og fjárfestingar, að einstaklingur kunni með öðrum orðum að fara vel með eigið fé. En fjármálalæsi er miklu stærra hugtak. Það snýst líka um að skilja verðmæti, eignarrétt, hvata, áhættu, fórnarkostnað og áhrif ákvarðana til langs tíma, og ekki síst um að kunna að fara með verðmæti sem maður á ekki sjálfur.
Tvö dæmi sýna þetta vel, hvort með sínum hætti. Annað þeirra er ein stærsta efnahagslega ákvörðun Íslandssögunnar, uppbygging kvótakerfisins, þar sem risavaxin fjárhagsleg verðmæti urðu til án þess að samfélagið næði almennilega utan um það á sínum tíma. Hitt er nýleg bandarísk tilraun, svokallaðir Trump-reikningar, þar sem lítil upphæð er gerð að sýnilegri, persónulegri eign barns frá fyrsta degi í lífi þess. Bæði dæmin snúast í grunninn um sömu spurningu: hvernig við hugsum eða hugsum ekki um verðmæti sem eru ekki enn okkar eigin.
Að úthluta rétti er líka að úthluta verðmætum
Byrjum á einföldu dæmi. Segjum að ríkið eigi tíu lóðir. Þær eru lítils virði á meðan óvíst er hvort megi byggja á þeim. Svo ákveður ríkið að aðeins megi reisa tíu hús á svæðinu og veitir tíu aðilum varanlegan, framseljanlegan byggingarrétt, án þess að þeir greiði markaðsverð fyrir hann. Daginn eftir er þessi réttur orðin að verðmæti. Ríkið hefur hvorki fengið peninga né millifært fé úr ríkissjóði, en verðmætin hafa engu að síður færst til, hljóðlaust og án þess að þau birtist sem útgjaldaliður í fjárlögum.
Þetta er í raun og veru einfölduð útgáfan af sögu kvótakerfisins.
Kvótakerfið: skynsamleg lausn á einu vandamáli, blind á annað
Kvótakerfið var sett á til að leysa raunverulegt og aðkallandi vandamál. Fiskstofnar eru takmörkuð auðlind, og ef allir mega veiða eins mikið og þeir vilja myndast klassískt vandamál. Hver og einn hefur hvata til að veiða meira áður en einhver annar gerir það. Til að bregðast við þessu var framseljanlegt aflahlutdeildarkerfi þróað í skrefum frá níunda áratugnum og heildstætt kerfi framseljanlegra kvóta tók gildi í upphafi árs 1991.
OECD hefur bent á að kerfið hafi stuðlað að minni sókn, fækkun skipa og aukinni hagkvæmni í sjávarútvegi. Að því leyti var um að ræða vel heppnaða hagfræðilega lausn. En þá vaknar sú spurning sem mér finnst skipta mestu máli: var með jafn ígrunduðum hætti hugsað um það fjárhagslega verðmæti sem varð til samhliða?
Það sýndi sig að kerfið hefur þjónað vel tilgangi sínum sem gott fiskveiðistjórnunarkerfi. Hins vegar skorti á fullnægjandi skilning á þeirri fjármálalegu eignamyndun sem framseljanlegi kvótinn leiddi af sér. Sú þversögn sem þarna varð til er að mínu mati einn áhugaverðasti lærdómurinn sem draga má af sögu kvótakerfisins.
Þegar aðgangur verður að verðmæti
Í lögunum frá 1990 stendur skýrt: „Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar.“ Þar kemur jafnframt fram að úthlutun veiðiheimilda myndi hvorki eignarétt né óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir þeim. En þegar heimildirnar urðu framseljanlegar og rétturinn til þeirra stöðugri, breyttist efnahagsleg mynd þeirra. Veiðiheimildir fengu verð. Þegar réttindi hafa verð, og hægt að selja þau, veðsetja þau og byggja fyrirtæki og efnahagsreikninga utan um þau, hafa þau öðlast raunverulegt fjárhagslegt verðmæti, óháð því hvernig eignarrétturinn er skilgreindur í lagalegum skilningi.
Upphafleg úthlutun byggðist að verulegu leyti á veiðireynslu skipa á undangengnum árum. Með tímanum urðu réttindin framseljanlegri og varanlegri og markaður fyrir þau þróaðist. Þar vaknar að mínu mati ein áhugaverðasta spurningin um fjármálalæsi í íslenskri efnahagssögu: skildum við sem samfélag að um leið og við vorum að byggja upp fiskveiðistjórnunarkerfi, vorum við einnig að skapa gríðarlega verðmæta fjárhagslegan ávinning? Ef auðlindin var sameign þjóðarinnar, hver átti þá verðmætin sem urðu til þegar aðgangurinn að henni var takmarkaður og gerður framseljanlegur?
Það er ekki tilviljun að þessi spurning er enn í fullu gildi. Veiðigjöld komu ekki til framkvæmda fyrr en löngu eftir að grunnkerfið hafði verið byggt upp og verðmætin höfðu að miklu leyti myndast. Umræðan um auðlindarentu og hlutdeild þjóðarinnar í henni er enn í gangi, sem sýnir að spurningunni sem lögin frá 1990 skildu eftir opna, hefur ekki verið svarað til fulls.
Við hugsum öðruvísi þegar verðmætin verða okkar
Spurningin um fjárhagslega verðmætið sem varð til með lögunum frá 1990 um framseljanleika kvótans leiðir að annarri hlið fjármálalæsis: eignartilfinningu. Hagfræðingar hafa lengi rannsakað hvernig fólk tekur ákvarðanir þegar það fer með eigin fjármuni annars vegar og fjármuni annarra hins vegar. Niðurstöðurnar eru hvorki afgerandi né einfaldar, fólk tekur ekki endilega meiri eða minni áhættu með peninga annarra, en rannsóknir sýna aftur á móti skýrt að ábyrgð, eignarhald og hvatar geta breytt ákvörðunum okkar. Það sem er „okkar allra“ getur auðveldlega orðið óhlutbundið. Það sem er „mitt“ verður áþreifanlegt.
Þarna finnst mér nýju svokölluðu Trump-reikningarnir í Bandaríkjunum áhugaverðir, óháð því hvað segja má um Donald Trump sjálfan.
Trump-reikningarnir: eignarhald frá fyrsta degi
Bandarísk stjórnvöld hafa ákveðið að börn sem uppfylla ákveðin skilyrði og fædd eru á árunum 2025 til 2028 geti fengið 1.000 dollara framlag frá ríkinu inn á fjárfestingareikning í sínu nafni. Fjölskylda, atvinnurekendur og aðrir geta síðan lagt meira inn á reikninginn. Peningarnir eiga að vera bundnir til langs tíma, eða þar til barnið verður 18 ára. Fjárfestingar á þeim tíma verða að fylgja breiðum bandarískum hlutabréfavísitölum, án skuldsetningar og með mjög lágum kostnaði. Við upphaf kerfisins varð S&P 500 vísitölusjóður sjálfgefin fjárfesting.
Það áhugaverðasta við hugmyndina er að mínu mati ekki þúsund dollararnir, heldur eignarhaldið. Því barnið á reikninginn og það getur fylgst með hvernig hann þróast. Foreldrarnir geta útskýrt af hverju hann hækkar og lækkar. Barnið lærir hvað hlutabréf eru, hvað ávöxtun þýðir og hvað tíminn gerir fyrir fjármagn. Fjármálalæsi verður þannig eitthvað sem þú lærir á grundvelli eigin reynslu sem er endurtekin á hverju ári eftir því sem reikningurinn vex.
Frá sameign yfir í eignartilfinningu
Þarna mætast dæmin um kvótakerfið og Trump-reikningarna á óvæntan hátt. Í öðru tilvikinu erum við að tala um gríðarlega sameiginlega auðlind, þar sem erfitt getur verið fyrir einstaklinginn að upplifa sjálfan sig sem eiganda. Í hinu er tiltölulega lítil fjárhæð sett inn á reikning einstaklings og eignarhaldið gert persónulegt og sýnilegt frá fyrsta degi.
Ef einhver segði við Íslending: „Þú átt örlítinn hlut í öllum nytjastofnum Íslands,“ hefur sú fullyrðing takmarkaða merkingu í daglegu lífi hans. En ef sami einstaklingur sæi verðmætið birtast á reikningi í sínu nafni myndi samband hans við eignina líklega breytast. Hann gæti farið að velta fyrir sér:
Hve mikils virði er eignin?
Hvernig er hún ávöxtuð?
Hver tekur ákvarðanir um hana?
Hvað greiða þeir sem fá að nýta hana?
Og fæ ég sanngjarna ávöxtun af eigninni minni?
Þetta eru nákvæmlega þær spurningar sem fjármálalæsi kallar fram hvort sem eignin er sýnileg á reikningi eða falin í sameiginlegri auðlind.
Fjármálalæsi samfélags
OECD skilgreinir fjármálalæsi ekki eingöngu sem þekkingu, heldur samspil þekkingar, færni, viðhorfa og hegðunar sem gerir fólki kleift að taka góðar fjárhagslegar ákvarðanir. Markmiðið snýr ekki aðeins að fjárhagslegri velferð einstaklings, heldur einnig að þátttöku hans í efnahagslífinu og velferð samfélagsins.
Mér finnst við Íslendingar ekki gera hugtakinu „fjármálalæsi“ nægilega hátt undir höfði. Við kennum ungu fólki að passa kreditkortið sitt, en tölum síður um hvernig ríkið ráðstafar eignum þess. Við kennum vaxtareikning, en ekki auðlindarentu. Við kennum hvað hlutabréf eru, en síður hvað gerist þegar stjórnvöld skapa tiltekin, framseljanleg réttindi sem öðlast markaðsverð. En þetta er allt fjármálalæsi.
Fjármálalæsi snýst ekki aðeins um að kunna að reikna vexti eða velja á milli sparnaðarleiða. Það snýst líka um að sjá þegar verðmæti verða til, skilja hver fær þau, hver ber áhættuna og hvaða hvatar liggja að baki ákvörðunum. Fjármálalæs þjóð þarf því ekki aðeins að kunna að fara með launin sín, hún þarf líka að kunna að fara með eignirnar sínar, þær sem hún á beint og þær sem hún á í félagi við alla hina.
Þegar teknar eru stórar ákvarðanir um sameiginleg verðmæti þjóðarinnar, hvort sem það er fiskveiðiauðlind eða eitthvað annað sem enn á eftir að úthluta, ættu kannski tvær spurningar alltaf að fylgja: hver eignast verðmætin sem verða til? Og myndum við taka sömu ákvörðun ef þetta væru okkar eigin peningar?
