Spakur Invest hf.
Stefna
Hjá okkur snýst allt um djúpa greiningu á fyrirtækjum, vel skilgreinda fjárfestingastefnu sem við fylgjum og ríka áherslu á að lágmarka áhættu.
Markmiðið er stöðug langtímaávöxtun í gæðafyrirtækjum sem hafa borð fyrir báru ef umhverfi þeirra og markaðsaðstæður breytast. Við viljum eignir sem hafa sem mesta stjórn á virðiskeðju sinni, búa við viðráðanlegar skuldir, sterkt sjóðstreymi og greiða reglulega út arð til hluthafa sinna.
Rannsóknir og áreiðanleikakannanir eru lykilatriði – við köfum djúpt í fjármál, stjórnun og markaðsþróun.
Við endurmetum eignir sjóðsins reglulega og bregðumst hratt við breytingum á markaði. Það er þó rík áhersla hjá okkur að velja eignir sjóðsins vel í upphafi og eiga þær til langs tíma. Við viljum lágmarka viðskipti sjóðsins og með því lágmarka kostnað.
Við fylgjum lögum og reglum og fylgjumst með breytingum á reglugerðum á sama tíma og við leitumst við að bæta stöðugt ferla sjóðsins.
Ef þú ert þolinmóður fjárfestir og langar til að fá innsýn inn í rekstur fjárfestingasjóðs, ert tilbúinn í samtalið þá er Spakur Invest staður fyrir þig og þitt fjármagn. Við höfum eitt markmið og það er að ávaxta ríkulega fjármagn sjóðsins.